EKKI MÁ FÓLK ORÐIÐ VIÐ MIKLU............??????

Já ég segi það nú að ekki má blessað fólkið við miklu í dag, það er af sem áður var þegar að hátt flaut í skipsflautum voru daglegt brauð og enginn kippti sér upp við slíkt!! Og þeir segja að eldri kona hafi talið að um neyðarflautur almannavarna væri að ræða, ég hefði nú talið víst að fólk sem væri komið á besta aldur myndi þekkja greinilega muninn á skipsflautum og neyðarflautum almannavarna, en svo virðist ekki vera samkvæmt fréttinni??

Kannski að þetta sé vegna þess að nú heyrir fólk aldrei flaut frá skipunum í höfninni í miðborg Reykjavíkur, ekki einu sinni á miðnætti á gamlárskvöld, það væri nú kannski ekki óvitlaust að taka þann sið upp aftur, enn því miður þá eru skipin orðin svo fá sem liggja við bryggju í gömlu höfninni að þetta gæti orðið erfitt, og þó það mætti nota okkar nýjasta varðskip Þór í það að flauta sem best hann gæti, er hann ekki hvort sem er alltaf bundinn við bryggju?? Laumuleg tillaga!!!!Enn það er líka spurning hvort einhver tæki eftir því þá???Sideways 


mbl.is Hávaðinn stafaði af eldvarnarkerfi Þórs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SKIPSFLAUTUR DREPA NÚ ENGANN!!

Þegar að ég heyri í skipsflautum þá minna þær mig á gamla góða daga, þegar að ég var í siglingum og við þurftum að standa vaktina upp í brú á gamla góða og fallega FLAGGSKIPI ÍSLENDINGA MS. GULLFOSSI!!Smile Þegar við notuðum flauturnar var kannski mikil þoka eða einhver leiðinda suddi, og við vorum skyldugir til að láta vita af okkur á þennan hátt!!Wink Eða þá að við vorum að heilsa eða kveðja!!

Enn þær minna líka á erfiða tíma eins og þegar að MS. GULLFOSS var seldur,(GEFINN!!!) Já það var til skammar hvernig stjórn Eimskipafélagsins hagaði sér þá, selja(gefa!!) þetta fallega skip fyrir örfá þúsund dollara?? Í staðinn fyrir að leyfa honum að liggja þá bara við bryggju og þjóna sem hótel eða eitthvað slíkt!! Hann myndi aldeilis sóma sér vel á Sjóminjasafninu eins og Óðinn-Magni og fl góðir í dag!!! Og ekki nóg með það þessir svokölluðu kaupendur vissu ekkert hvernig þeir áttu að hugsa um skipið og misstu það stuttu eftir að þeir fengu hann í hendurnar á botninn í höfninni þar sem hann lá,fyrir "böl......" klaufaskap!!!! Það var grátlegt að frétta það!!Crying nú aftur að því þegar að siglt var út úr Reykjavíkurhöfn í síðasta sinn á haustkvöldi 1973, eftir 23 ára góða og yndislega þjónustu, þá voru flauturnar þeyttar í kveðjuskyni og önnur skip í höfninni tóku öll undir, þá var líf og fjör í gömlu höfninni, og alltaf gaman þegar að við vorum að koma heim, og á móti okkur tók full bryggja af fólki veifandi og brosandi, þá var gaman að vera í endunum að framan og nánast geta tekið í hendurnar á fólkinu sem var að taka á móti okkur, eða réttara sagt þeim farþegum sem það þekkti, þá var gaman að vera til!!!Grin Hvort sem við vorum að koma eða fara!! Og fyrst ég er nú byrjaður að skrifa um þetta fallega skip, að þá er ein ferð eiginlega ógleymanleg, mig minnir í ágúst 1971 þá fórum við hringferð um Ísland með eldri borgara, og það var nú aldeilis fjör bæði um borð og á hverjum þeim stað sem við komum á, byrjuðum á Ísafirði, síðan var það Akureyri-Seyðisfjörður og svo Vestmannaeyjar, og á öllum stöðum voru bryggjurnar sneisafullar af fólki og gleðin og hamingjan við völd bæði um borð og upp á bryggjunum, ég man sérstaklega eftir því þegar að við komum til Vestmannaeyja þá var nú bara allir íbúar bæjarins komnir niður á bryggju að taka á móti okkur, og voru þá heldur betur þeyttar skipsflautur og á móti fengum við bílflautukór Vestmannaeyinga þá var nú aldeilis fjör og gaman að vera til eða svona jáaá.....þetta var um helgi!!! Við strákarnir í áhöfninni vorum jú jú glaðir, enn hefðum verð enn glaðari ef að þetta hefði verið helgina á eftir, því þá var ÞJÓÐHÁTÍÐ VESTMANNAEYINGA, hvar haldið þið að við hefðum verið þá............................Cool Enn svona var þetta, og ekki vissi nokkur maður að þegar við kæmum næst til Vestmannaeyja, þá kæmum við sem Björgunarskip 1973!! Lágum úti fyrir eyjunum í góðan tíma, gátum ekki siglt inn því okkar góði Gullfoss risti svo djúpt að það var enginn sjens tekinn á því að fara að stranda honum í innsiglingunni því það hafði rignt mörg hundruð sennilega þúsundum tonna af vikri og innsiglingin hafði grynnst svo mikið, og við fengum heldur betur að finna fyrir því þó svo að við lægjum ekki alveg upp í harða grjóti, þegar að sprengirnar komu þá rigndi yfir okkur ösku og vikri svo við höfðum varla undan að moka og moka í sjóinn, já mokið já mokið meiri (snjó) Vikri og Ösku!! Þetta myndi okkur á snjómoksturs lagið góða!!!!!Enn sprengingarnar voru svo svakalegar þó eins og ég sagði að við lægjum þó nokkuð frá eyjunum þá skalf og nötraði dallurinn stafnana á milli og það var sko ekkert smávegis!!!!!Frown Jæja nú er ég sjálfsagt kominn langt út fyrir hið raunverulega efni sem bloggið á og átti að snúast um, þ.e.a.s. SKIPSFLAUTU HÁVAÐA!!! Ég vona að mér verði fyrirgefið það og allt þetta sem kom bara upp í hugann þegar að ég byrjaðiiiiiiii!!!!GetLost 

Enn ég er nokkuð viss um að það eru margir mér sammála í þessu máli, allavega þeir sem muna þessa gömlu góðu daga og ég tala nú ekki um okkar stórglæsilega MS. GULLFOSS þeirra tíma!!!!!


mbl.is Skipsflautur þeyttar í Reykjavíkurhöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HANNA BIRNA ÆTTI AÐ SKAMMAST SÍN, OG TAKA FRAM FYRIR HENDURNAR Á ÞESSU SVOKALLAÐA STARFSFÓLKI ÚTLENDINGASTOFNUNAR STRAX!!!

Að lesa þetta viðtal við hann Ellert Högna er svo átakanlegt, og ég skil ekki af hverju hún Hanna Birna sjálfur Innanríkisráðherrann skuli ekki vera búin fyrir löngu síðan að taka fram fyrir hendurnar á þessu svokallaða starfsfólki þessarar Útlendingastofnunar, hún er ráðherrann og hún hefur valdið það þarf enginn að segja mér annað!! Og að hún skuli ekki grípa inn í þegar að þetta svokallaða starfsfólk stofnunarinnar gerir sér lítið fyrir og sakar Ellert Högna um fölsun á pappírum, og jafnvel að halda því fram Romylyn Patty sé ekki dóttir móður sinnar??? Þetta lýsir engu öðru enn hatri á Asísku fólki sem er að reyna að fá hér dvalarleyfi, það virðist reyna að gera allt sem það getur til að tefja málið og biðja um þetta og hitt sem að það er löngu búið að fá, og svo það nýjasta frá þeim er að krefjast nýrra pappíra því að þeir sem þeir hafa í höndunum séu orðnir of gamlir enn bíddu nú við hverjum er um að kenna, engum nema þeim sjálfum þ.e.a.s. þessu svokallaða starfsfólki Útlendingastofnunarinnar?? Þau virðast hafa heldur betur breyst vinnubrögðin hjá þessari stofnun frá árinu 2002, þegar að mín elskulega og gullfallega eiginkona kom til landsins frá Filippseyjum og fór eins og hún átti að gera og sótti um sitt dvalarleyfi og var það bara afgreitt strax og ekkert vesen, (Enn það skal tekið fram að við vorum gift!!) Og engar beiðnir um þessa og hina pappírana eftir að hún hafði skilað þeim til stofnunarinnar í fyrstu, alveg eins og Romylyn Patty gerði, en nú mætti hún engu nema fyrirlitningu og fjandskap, ég segi bara enn og aftur það er af sem áður var!!! Nú veit ég að þeir sem eru á móti því að stúlkan fái dvalarleyfi, að það sé ekki hægt að bera það saman við það að eiginkona mín fékk dvalarleyfi, vegna þess að við vorum gift og erum gift, enn hvað með stúkuna var hún ekki hér fjölskyldunni sinni og sinni réttu móður sem að er gift Íslendingi, nei ég segi það enn og aftur að þetta sýnir ekkert annað enn "hatur" á fólki frá Filippseyjum að minnsta kosti, og þetta starfsfólk er einfaldlega ekki starfi sínu vaxið og á að skipta því öllu út og fá hæft starfsfólk á þessa Útlendingastofnun strax!! OG SÝNDU NÚ HANNA BIRNA INNANRÍKISRÁÐHERRA AÐ ÞÚ GETIR OG VILJIR TAKA Á ÞESSU MÁLI STRAX, HÚN ROMYLYN PATTY ER LÆRÐUR ÖLDRUNARHJÚKRUNARFRÆÐINGUR, ENN AF ÞVÍ HÚN HEFUR ENGA KENNITÖLU ÞÁ GETUR HÚN HVORKI FARIÐ AÐ VINNA EÐA Í HÁSKÓLA SEM HÚN HEFUR ÁHUGA Á OG ÆTTI AÐ SÝNA ÞAÐ AÐ ÞETTA ER GÓÐ STÚLKA OG EKKERT Í NEINU RUGLI, ÉG VEIT UM NOKKRAR SEM AÐ HAFA FENGIÐ DVALARLEYFI SVO TIL STRAX ENN HAFA EKKI ÞETTA TIL AÐ BERA SEM ROMYLYN PATTY HEFUR OG EINS OG ÉG SAGÐI ÞÁ ÆTTI ÞAÐ AÐ SÝNA ÖLLUM JÁ ÖLLUM AÐ ÞESSI STÚLKA MYNDI VERÐA AFBURÐAR GÓÐUR ÍSLENDINGUR ÞEGAR AÐ ÞAR AÐ KÆMI!!!!!
mbl.is „Hún bara gafst upp og fór“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER ÞETTA EKKI NÁKVÆMLEGA ÞAÐ SAMA OG MEÐ ÖLL LOFORÐ FRAMSÓKNARFLOKKSINS!!

Það er alvega sama hvar niður er borið í sambandi við þessa Framsóknarráðherra, tóm svik og prettir!! Hvað ætli þeir hafi fengið mörg atkvæði í kosningunum bara vegna þessara loforða þeirra um hækkanir og leiðréttingar á bótum elli og örorkulífeyrisþega strax frá og með 1. júlí 2013 til útgreiðslu 1. ágúst 2013?? En hvað skeði öll loforðin um að afnema tengingar lífeyrissjóðsgreiðslna urfu eins og dökk fyrir sólu!!! Ég vann mikið hér áður fyrr og greiddi þar af leiðandi í lífeyrissjóði og hélt í sakleysi mínu eins og tugþúsundir annarra launþega að ég væri að greiða í þessa "Lífeyrissjóði sem mundi koma sér vel á efri árum eða ef að eitthvað kæmi upp á þannig að ég myndi verða að hætta að vinna langt um aldur fram, sem og varð rauninn, enn hver var trygginginn með þessum greiðslum, ENGINN, það er dregið svo mikið af tekjutryggingunni og því sem henni fylgir að þessi svokallaða hækkun og allar þær leiðréttingar sem Framsóknarmenn lofuðu urðu engar, en enn og aftur fengu þessir Framsóknarmenn opnir í báða enda, þvílíkt fylgi út á þessi loforð sín, að allir vita sem vilja vita að þeir ætluðu sér aldrei að efna frekar enn annað sem frá þeim kemur!!!!

Sigmundur-Eygló og öll hin sem hafa með þessa mála flokka að gera, þið ættuð að sjá sóma ykkar í því og standa við þessi loforð sem að komu ykkur í núverandi Ríkisstjórn!! Mér þætti gaman að sjá ykkur lifa af 350.000 kr fyrir hjón sem eru örorkulífeyrisþegar, sem þurfa að greiða húsaleigu fyrir vel á annað hundrað þúsund á mánuði, + alla fasta gjaldaliði rafmagn-tryggingar og aðrar afborganir sem hinn venjulegi borgari þarf einnig að greiða, enn munurinn er sá að það munar nokkur hundruð þúsundum á hinum föstu launagreiðslum hjá honum og lífeyrisbótaþeganum, svo að það sér hver heilvita maður að sá sem er með rúmar 300.000 þús kr á mánuði á ekki mikið eftir þegar að þessar föstu greiðslur hafa verið greiddar, nú skal það tekið fram að enginn er að fara fram á sömu greiðslur og vinnandi maður enn fyrr má nú fyrrvera á þessum hrikalega mun, og þetta ætluðu Framsóknarmenn sér að lagfæra svo að lífeyrisbóta greiðslurnar yrðu mönnum sæmandi, enn sömu Framsóknarsvikinn komu upp á yfirborðið og enn eru þeir að!!! Nei þeir skulu ekki halda að þeir sitji í næstu Ríkisstjórn sem vonandi verður sem fyrst komið á laggirnar eftir að Sigmundi og félögum hefur verið steypt enn og aftur!!!


Tók lögreglan ekki skýrslu af báðum aðilum???

Þetta er eitthvað meira enn lítið einkennilegt mál, þegar að lögreglan er kölluð á vettvang þar sem að svona nokkuð hefur átt sér stað þá hefði ég haldið að henni bæri skylda til að taka skýrslu af báðum aðilum á vettvangi, enn ekki bara öðrum eins og virðist hafa verið gert í þessu tilfelli eftir fréttinni að dæma, ef að það er rétt að svo hafi verið í þessu máli, því það bíður einfaldlega hættunni heim að sá aðili sem að skýrslan er tekinn af reyni að snúa atvikinu sér í hag, og get ég ekki betur séð enn að svo hafi verið í þessu tilfelli ef að marka má fréttina og lýsingu af þessu atviki!!?Woundering

Hvernig í ósköpunum getur lögreglan ákveðið hver er hinn seki og hver ekki verandi aðeins með skýrslu frá öðrum aðilanum (ef það er þá einhver skýrsla yfir höfuð??)?? Og til að bæta gráu ofan á svart í þessum vinnubrögðum lögreglunnar að leyfa sér (ef rétt er!) að hringja heim til annars aðilans í máli þessu til þess að kynna honum rétt hans sem SAKBORNINGS??? Ef að það lægi á hreinu fyrir að svo væri að þá hefði ég haldið að lögreglan hefði átt að senda honum kvaðningu/boðun um að mæta á lögreglustöð vegna þessa máls og fá þar með hans/hennar útskýringar á málinu, fyrir nú utan það að samkvæmt fréttinni að þá var þarna hópur vitna sem að lögreglan hefði einnig átt að fá einhverjar útskýringar á málinu í það minnsta, þó ekki hefði verið nema frá einhverjum fáum?!!!

Nei þetta er eitthvað meira enn lítið einkennilegt mál allt saman, og myndi ég nú álita að blaðamaðurinn sem að skrifar þessa frétt hefði nú fyrst átt að hafa samband við lögregluna og fá að vita eitthvað meira og betra um málið áður enn hún/hann smellir þessu bara beint inn á mbl.is!!??

Með von um að allir fari sáttir frá málinu, því að það er alltaf besta lausnin enn ekki eitthvert bölv og klúðuryrði í hvors annars garð því það leysir aldrei eitt eða neittWink.


Ef ég þekki Grýtubakkahrepps bændur rétt þá..............................

Ef ég þekki Grýtubakkahrepps bændur rétt þá láta þeir snjóinn, þó að síðan í september sé ekki kaffæra sigWink  þeir eru ýmsu vanir og öllu fegnir, þetta eru bændur sem vita hvað þeir gera og hvað þeir eiga að geraSmile ég man vel eftir því Reykjavíkurpollinn veturinn 1981, enn þá byrjaði að sjóa á svipuðum tíma og mér Reykjavíkurpollanum leist nú ekki alveg á blikuna, og þá sögðu Grenivíkurbúar að þetta væri nú ekkertGrin og skelli hlógu að mér Reykjavíkurpollanum, það var þannig að ég sá um póst og aðra flutninga á milli Grenivíkur og Akureyrar á þessum árum frá "79, enn þetta var svolítið mikið í mínum augum þegar að búið var að troða snjóinn svo vel að keyrt var fram hjá gluggunum á annarri hæðCrying  svona er þetta sögðu heima menn. og það lá við að ég kastaði öllu frá mér og færi aftur "heim til snjólausu ReykjavíkurErrm , enn nei ég gafst ekki upp þá, enn svona er þetta sem bændur og aðrir Grýtubakkahreppsbúar  þurfa að búa við oftast ár eftir ár, og eiga bændurnir heiður skilið fyrir hörkuna og dugnaðinn við að halda fjárbúskap og einnig kartöflubúskap í þessum veðrum svo að við Reykjavíkurræflarnir fáum einhvern matarbita ofan í okkurWink
mbl.is Harðindavetur og heyskortur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AKSTUR FLUTNINGABÍLANNA OG EKKI VAR NÚ VANDAÐ VEL TIL UNDIRBÚNINGS VEGARINS!!!!!

Já það er mín skoðun og ábyggilega fleiri, að það á að banna allan akstur þessa stóru og þungu flutningabíla um þennan veg svo og margra annarra um land allt, í fyrsta lagi þá eru ökumenn þessara bíla varla starfi sínu vaxnir þegar að þeir aka svo hratt að það er langt fyrir ofan öll hámarkshraða mörk, og taka ekkert tillit til annarrar umferðar þannig að hraðinn á þeim er svo mikill að þeir feykja öðrum bílum er þeir mæta allt að því út af veginum, svo eru þessir jálkar svo þungir með fulllestaða langa bílanna og þar að auki með annan eins vagn í eftirdragi svo að hver jálkur eyðileggur vegina á við 70 venjulega bíla!! Það er nú loksins komið fram að banna akstur bíla sem eru einhver 7-8 tonn að öxulþyngd, það er bara ekki nóg því vegirnir eru alls ekki það vel byggðir að þeir þoli allan þennan þunga þegar að þeir koma hver á eftir öðrum, nei það á að fara með alla eða að minnsta kosti flesta þessara flutninga í skipin og taka upp strandsiglingar aftur eins og áður var, Samskip segjast vera að byrja með eitthvað af þeim aftur og er það vel, enn betur má ef duga skal, slysahættan er ekkert lítil af þessum tröllvöxnu flutningabílum og það eitt og sér er alveg nóg til að flytja alla þessa flutninga yfir á skipin, það eru komnar nokkuð góðar hafnir á al flestum bæjarfélögum landsins og á að nota þær, miklu frekar enn að eyðileggja vegakerfi landsins með akstri þessara þessara flutningabíla bæði af þyngd þeirra og ekki sé nú talað um hraðakstur þeirra, sjálfsagt eru bílstjórarnir undir mikilli pressu að vera nógu fljótir á milli staða?? Allavega væri hægt að ímynda sér það eftir þessum rosalega akstri þessara bíla!! 


mbl.is Slæmur og hættulegur vegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ VERÐ ÉG AÐ BIÐJA YKKUR AÐ FYRIRGEFA MÉR!!ÉG VAR AÐEINS OF FLJÓTUR Á MÉR AÐ SENDA FYRRA BLOGGIÐ MITT FYRR Í KVÖLD 13. OKTÓBER 2008!

Já nú verð ég að biðja ykkur að fyrir gefa mér, því í fyrra blogginu mínu í kvöld þá var ég reiður út í hann Brown, enn eftir því sem ég skrifaði lengur að þá smátt og smátt hreinlega hvarf hún svona að mestu leyti,Blush  Enn þó að svona hafi farið fyrir mér og mínum skrifum, þá kom þó eitt gott út úr öllu saman, það sem að ég var að reyna að segja í fyrra blogginu um það ef eitthvað bjátaði á og að manni fyndist erfiðleikarnir vera að buga mann, að gefast aldrei upp, missa aldrei vonina að þá gleymdi ég því bara hreinlega að það er líka hægt að setjast niður. t.d. við tölvuna ef hún er fyrir hendi, annars bara á gamla mátann og skrifa um það sem að manni liggur þungt á hjarta og í flestum tilvikum tekst manni að skrifa sig frá því erfiðasta líka ásamt því að nota það sem ég nefndi í fyrra blogginu mínu í kvöld 13. október 2008!! Og þó að fyrirsögnin hafi átt að vera önnur á því fer ég nú ánægður að sofa fyrst ég uppkvötvaði þetta strax!!! Enn og aftur góða nótt og megi góður guð vaka yfir okkur öllum á komandi nóttu, aðfararnótt 14. október 2008Sleeping

HVAÐ SAGÐI ÉG!! BROWN FÉKK ÞAÐ Í BAKIÐ OG ÁTTI SVO SANNARLEGA SKILIÐ!!

Jæja elskurnar mínar þá er ég kominn hér afturHeart , Ég vona og bið að sem flest ykkar hafi átt ánægjulega og gleðiríka helgi, þó ég viti vel að margir eru kannski í örvæntingu og miklum erfiðleikum, þá munið þið það elskurnar að þá er aðeins eitt að gera, BIÐJA GÓÐAN GUÐ UM KRAFT OG STYRK TIL AÐ KOMAST Í GEGN UM ERFIÐLEIKANA, OG EF AÐ ÞIÐ EIGIÐ BIBLÍUNA, ÞÁ HVET ÉG YKKUR TIL AÐ DUSTA AF HENNI RYKIÐ, Þ.E.A.S. EF ÞIÐ HAFIÐ EKKERT OPNAÐ HANA Í LANGAN TÍMA? ÞAÐ ER SVO SKRÝTIÐ OG ÞÓ KANNSKI EKKI, EF AÐ MAÐUR TEKUR BIBLÍUNA SÉR Í HÖND OG BARA OPNAR HANA EINHVERSSTAÐAR ÞÁ BREGST ÞAÐ YFIRLEITT EKKI AÐ ÞAR BLASIR VIÐ MANNI TEXTI SEM AÐ GEFUR MANNI RÓ, KRAFT OG EINHVERSKONAR INNRI FRIÐ, ÞAÐ ER ERFITT AÐ LÝSA ÞVÍ, ÞAÐ FINNUR ÞAÐ HVER OG EINN ÞEGAR AÐ HANN HEFUR LESIÐ KANNSKI EKKI NEMA NOKKUR ORÐ EÐA LÍNUR, SUMIR SJÁ MEIRA OG ERU BÚNIR AÐ LESA HEILA BLAÐSÍÐU ÁÐUR EN ÞEIR VITA AF, OG EF ÉG MÁ, ÞÁ LANGAR MIG AÐ BENDA YKKUR Á EINN AF SÁLMUNUM GÓÐU, ÞAÐ ER SÁLMUR NÚMER 121!!HANN ER ALLAVEGA AÐ MÍNU VITI MJÖG GÓÐUR, UPPBYGGJANDI OG GEFUR MANNI KRAFT OG STYRK!!!  Þið megið ekki taka þessu sem ég sé einhver guðspostuli og þó þið megið alveg gera það ef ykkur sýnist svo, en það sem ég er að reyna að segja við ykkur að ef einhver hefur reynslu af þessu sem ég hef verið að segja, þá er það ég!!!Því þeir erfiðleikar,slys og veikindi sem ég hef lent í og sumu hverju ítrekað, legið hreinlega dáinn vikum saman og bara vélar sem að hafa haldið þeim líffærum gangandi sem til þurfti, og nú síðast bókstaflega öllum, en engu að síður þá var það oft sem vélarnar sýndu að ég væri að fjara alveg út, þá tókst læknunum oftast að koma mér í gang aftur, nema ef vera skyldi einu sinni að þá gáfust þeir upp hver af öðrum og sögðu þetta þýðir ekkert þetta er búið, þá var það EINN LÆKNIR sem neitaði að gefast upp og hætti ekki fyrr enn allt í einu að skjáirnir sýndu að ég væri að koma aftur!!!Og ég veit vel að ég á honum líf mitt að þakka í dag,Heart  Og þegar að ég er að fara með bænirnar mínar á kvöldinn, að þá þakka ég guði fyrir það að við séum svona heppinn að hafa þessa góðu lækna sem eru ekkert annað enn verkfæri hans okkur til hjálpar og hvern þann dag sem ég hef fengið að lifa fram til þessa, og þó að að öll þessi ósköp hafi dunið yfir mig á ekkert mjög löngum tíma, að þá einhverra hluta vegna hef ég ekki misst vonina, ég hef beðið, það þarf ekki að vera heil messa, nei bara biðja til hans sem ÖLLU RÆÐUR, Ég segi bara það og meina það sem ég hef reynt að hafa að leiðarljósi í gegnum annars erfiða ævi, það er að gleyma mér ekki í öllu þessu lífsgæða kapphlaupi sem þjóðinn hefur verið heltekinn af undanfarinn ár því miður, og þarf nú að súpa seyðið af, enn þó svo að mér hafi orðið á í messunni og ekkert farið varhluta af henni, heldur enn flestir sem að þetta land búa, þó að sjálfsögðu að það sé í mismiklu mæli eins og öllu öðru, enn eins og ég segi að þá er númer:1-2 og 3 að missa aldrei vonina, og fyrst að mér hefur tekist það eftir allt sem á undan er gengið, þá getur þú það líka lesandi góður!!Joyful  Og þó að ég hafi blásið út úr mér reiðinni hér í garðs Browns forsætisráðherra Breta, að þá skulum við muna það að það sem hann gerði okkur Íslendingum og Íslenskum fyrirtækjum fyrir helgina, fékk hann heldur betur í bakið í morgunn, þarf varla að segja það hér hvað það var!! Það er nefninlega svo að ef að við gerum eitthvað ekki gott á annars hlut, þá fáum við það í bakið aftur þó síðar verði!!! Jæja elskurnar þá læt ég þetta gott heita að sinni í mínu bloggi hér að kvöldi 13. dags október 2008, ég bið þess að góður guð megi blessa og vaka yfir ykkur öllum, og bíð góða nótt!Sleeping

GAT BROWN LÁTIÐ AF STÓRMENNSKU KJAFTÆÐINU!!

JÆJA ÞAÐ KOM AÐ ÞVÍ AÐ ÞESSI SVOKALLAÐI FORSÆTISRÁÐHERRA BRETA LÉTI AF ÞESSARI STÓRMENNSKU SINNI (OG ALLT AÐ ÞVÍ STRÍÐSYFIRLÝSINGU Í GARÐ ÍSLENDINGA!!)Angry OG ER GOTT AF ÞVÍ AÐ VITA AÐ HANN SKULI VERA BÚINN AÐ ÁTTA SIG Á ÞVÍ, AÐ ÞAÐ SEM HINN ENSKI ALMENNINGUR ÁTTI INNI Í LAUNUM HJÁ ÍSLANSKA BANKANUM, VAR EKKI SÚ UPPHÆÐ SEM SETJA MYNDI BRETLAND Á HAUSINN, VEGNA( "HRYÐJUVERKASTARFSEMI ÍSLENDINGA" )NEI ÆTLI HONUM HEFÐI EKKI VERIÐ NÆR AÐ LÍTA Í EIGIN KOPP ,Shocking OG SJÁ HVERT STEFNDI HJÁ HONUM OG FÉLÖGUM HANS Í RÍKISSTJÓRN BRETLANDS!!!!  ÞAÐ HEFÐI ÉG NÚ HALDIÐ SVONA Í FÁVISKU MINNI!!!Whistling
mbl.is Þokumst nær samkomulagi við Breta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

PÁLMAR SMÁRI GUNNARSSON
PÁLMAR SMÁRI GUNNARSSON
Hef gaman af að fylgjast með umræðunni í þjóðfélaginu almennt, þ.e.a.s ef það er eitthvað vit í henni og þá kannski aðeins að láta frá mér heyra, ef ég nenni því?? Ef um íþróttir er að ræða að þá er ég svo til fæddur og uppalinn á KR-Vellinum og er því einn sá allra harðasti KR-ingur sem um getur, eða þannig.......!!!

271 dagur til jóla

Færsluflokkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband